Við hönnum fyrir þig!

Studio Minta er hönnunarstofa á Akureyri sem sinnir innanhússhönnun og ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki ásamt grafískri hönnun fyrirtækja. Bjóðum einnig upp á auðkenningarpakka þar sem innanhússhönnun og grafísk hönnun er unnin saman innan sömu stofunnar.

Menntun og reynsla gefur þér niðurstöðuna sem þú leitast eftir.

Heyrðu í okkur og fáðu tilboð í þitt verkefni!

“Við elskum vinnuna okkar og brennum fyrir hönnun. Það er ekkert sem toppar það að sjá ánægðan viðskiptavin eftir langt hönnunarferli, en hverju hönnunarferli er hægt að líkja við meðgöngu og afrek erfiðisins er barnið sem maður fær svo að sjá blómstra.”


  • Við gefum tilboð í hvert verkefni fyrir sig. Best er að hafa samband í síma eða netfangi og við hittum þig á fundi þar sem við yfirförum verkefnið og þínar óskir og í framhaldi sendum við þér tilboð sem þú getur samþykkt eða hafnað. Þú ert ekki skuldbundin neinu þótt þú fáir tilboð frá okkur.

  • Innanhússráðgjöf er tilvalin leið fyrir þá sem ætla í framkvæmdir sjálfir en þurfa smá aðstoð í byrjun varðandi útlit rýmis, litaval osfr. Þegar þú kaupir ráðgjöf sendir þú greinagóðar upplýsingar um verk, helst með teikningum og myndum til okkar. Við yfirförum allar þær óskir sem teknar eru fram og skoðum umfang verksins og hittum þig síðan á 2-3 tíma fundi þar sem þú getur spurt allra þeirra spurninga sem á þér brenna og við förum yfir okkar hugmyndir. Í framhaldi tekur þú við verkefninu á eigin spítum.

  • Minta auðkenni er grafískur vörumerkja- og auðkenningar pakki. Þá er allt unnið saman frá vörumerki, ýmindar, vitundar og sérkennis þíns fyrirtækis. 

    Við gefum verðtilboð í hvert verk fyrir sig og því gott að hafa samband í tölvupóst og óska eftir tilboði í þinn auðkenningarpakka.

  • Auðkenningapakki er góður fyrir ný fyrirtæki eða fyrirtæki sem eru að endurauðkenna sig (rebranding). En þá er öll innanhússhönnun ásamt allri grafískri auðkenningu unnin innan sama fyrirtækisins til að gefa þér sem heildrænasta mynd á fyrirtækið þitt.

Algengar spurningar

Við hönnum fyrir þig !